
Heildarlausnin
Þú fyllir út formið hér fyrir neðan og við verðum í sambandi með tíma fyrir skoðunina.
Við komum svo í heimsókn og förum yfir allar mögulegar útfærslur af baðherberginu.
Í framhaldi af skoðuninni gefum við þér tilboð í verkið (hluti af verkinu getur verið samkvæmt tímagjaldi) og skilum af okkur uppkast af útliti baðherbergisins ásamt skýringum.
Þegar verkið hefur verið bókað þá gefur Baðlínan þér ráðleggingar á þeim vörum sem þarf fyrir baðherbergið, en við bjóðum upp á allar þær vörur sem þarf fyrir verkið eða flísar, flísaefni, niðurföll, sturtutæki, sturtugler, salerniskassa, salerni, þrýstispjöld, handklæðaofna, innréttingar, vaska, blöndunartæki, spegla, speglaskápa, baðkör o.s.frv., en vöruúrvalið getur þú skoðað í netverslunni okkar.
Allir iðnaðarmenn á einum stað
Iðnaðarmenn Baðlínunnar ásamt verkstjóra vinna svo verkið á vandaðann máta!
Heildarlausn Baðlínunnar er fagleg, þægileg og einfaldar allar framkvæmdir fyrir eigandann!
Skoðunargjald Baðlínunnar er 26.900 kr. m/vsk fyrir hvert baðherbergi (skoðun, uppkast af útliti og vinnutilboð), en til að bóka skoðun fyllir þú út formið hér fyrir neðan:
Heimsókn
Við komum til þín og förum yfir verkið
Uppkast af útliti
Skilum af okkur teikningu af baðherberginu
Vinnutilboð
Þú færð tilboð í framkvæmdina
Verkið bókað
Samþykki á vinnutilboði í tölvupósti
Ferlið hefst
Val á efni og verkið sett inn í kerfið hjá Baðlínunni
Eigendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um 35% endurgreiðslu hjá Skattinum af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað, vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að samþykkja leyfir þú okkur að nota vafrakökur til að greina umferð og bæta þjónustu okkar. Sjá nánar í skilmálum.