Netverslun

Skilmálar

Viðskiptaskilmálar Baðlínan ehf.

1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti í netverslun Baðlínunnar, sem rekin er af Baðlínan ehf., kt. 540313-1210. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.

2. Verð og gjaldmiðill

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK). Baðlínan áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Verð sem gildir er það verð sem birtist þegar pöntun er staðfest.

3. Pöntun og greiðsla

Pöntun telst bindandi þegar greiðsla hefur verið staðfest. Greiðsla fer fram með debet- eða kreditkorti í gegnum öruggt greiðslukerfi Teya. Kaupandi fær staðfestingu á pöntun í tölvupósti eftir greiðslu.

4. Sending og afhending

Sendingar eru á þriðjudögum og föstudögum. Sendingarkostnaður fer eftir tegund vöru:

  • Sending án flísa og/eða sturtuglers: 9.900 kr. á höfuðborgarsvæðið eða flutningsstöð.
  • Sending með flísum og/eða sturtugleri: 19.900 kr. á höfuðborgarsvæðið eða flutningsstöð.

Sendingar á höfuðborgarsvæðinu eru afhentar að viðkomandi húsi (burður er ekki innifalinn í verði, en hægt að óska eftir burði á vörunni inn í viðkomandi húsnæði gegn taxta sendibílstjóra sem kaupandi greiðir þá beint til hans að auki) og á flutningsstöðvar fyrir landsbyggðina. Afhendingartími getur verið breytilegur eftir framboði á vörum og ber seljandi ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verða kann vegna seinkunar á afhendingu eða rangrar afhendingar og/eða ef vara kemur gölluð frá birgjum. Baðlínan leitast við að afhenda vörur eins fljótt og auðið er, en með það að markmiði að pantanir sem berast frá fimmtudegi til sunnudags eru keyrðar út á þriðjudögum og pantanir sem berast frá mánudegi til miðvikudags á föstudögum.

5. Skilaréttur

Kaupandi hefur 14 daga skilarétt frá móttöku vöru í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003. Vara skal vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum þannig að hægt sé að setja hana aftur á lager til endursölu. Kaupandi ber sendingarkostnað við skil. Endurgreiðsla fer fram innan 7 daga frá móttöku skilavöru. Sérpantaðar vörur og vörur sem eru sérstaklega framleiddar eftir óskum kaupanda falla ekki undir skilarétt.

6. Ábyrgð og gallar

Vörur eru seldar með ábyrgð framleiðanda þar sem við á. Ef vara reynist gölluð skal kaupandi tilkynna það án tafar til Baðlínunnar á [email protected]. Baðlínan mun þá meta hvort um galla sé að ræða og bæta úr í samræmi við lög.

7. Persónuvernd

Baðlínan meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Upplýsingar sem safnað er við pöntun eru einungis notaðar til að afgreiða pöntunina og veita þjónustu. Upplýsingum er ekki deilt með þriðja aðila nema nauðsynlegt sé vegna sendingar eða greiðsluafgreiðslu.

8. Ágreiningur

Komi upp ágreiningur vegna viðskipta skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Náist ekki samkomulag er heimilt að vísa málinu til Neytendastofu og/eða Héraðsdóms Reykjavíkur.

9. Upplýsingar um seljanda

Baðlínan ehf.

Kt: 540313-1210

VSK nr: 113467

Netfang: [email protected]

Vefsíða: www.badlinan.is

Sími: 618-6011

Skilmálar síðast uppfærðir: Mars 2026

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að samþykkja leyfir þú okkur að nota vafrakökur til að greina umferð og bæta þjónustu okkar. Sjá nánar í skilmálum.